Skilmálar

Almennt

Vefurinn sukkuladi.is er rekinn af Neta ehf, kt 420200-3230, Klapparhlíð 22, 270 Mosfellsbæ. Sukkuladi.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og annarra rangra upplýsinga. Upplýsingar um vöru, verð og magn á lager er birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Ef einhverjar athugasemdir koma upp í pöntunarferli verður haft samband við væntanlegan kaupanda.

Afhending vöru og sendingarkostnaður

Pantanir reynum við að afgreiða, og koma á flutningsaðila, innan við 24 klukkustundum eftir staðfestingu pöntunar. Sé varan ekki til á lager verður haft samband og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Ef um kælivöru er að ræða þá reynum við að tryggja að hún komist til skila í góðu ástandi. Á höfuðborgarsvæðinu er vörum keyrt heim til kaupanda eða sendar á næsta pósthús. Fyrir pantanir sem dreift er af Póstinum gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Póstsins. Ef annar flutningsaðili er notaður að óskum kaupanda gilda sömu skilmálar. Sukkuladi.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði varan fyrir tjóni frá því varan er afhent flutningsaðila er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Ef ekki er hægt að senda vöru með umbeðnum flutningsaðila, t.d. vegna stærðar eða þyngdar, verður haft samband við kaupanda og önnur leið fundin. Ef ekki næst samkomulag um flutningskostnað í slíkum tilvikum getur kaupandi eða sukkuladi.is einhliða ákveðið að hætta við pöntun.

Heimkeyrsla á höfuðborgarsvæðinu

Við bjóðum upp á heimkeyrslu samdægurs ef pantað er fyrir kl. 12.00. Ef pantað er eftir kl. 12.00 verður varan keyrð heim næsta virka dag. Ef pantað er fyrir hádegi á föstudögum er varan keyrð heim á laugardegi eða mánudegi. Pantanir á laugardögum og sunnudögum eru keyrðar út á mánudögum. Pöntun er keyrð heim á milli 17.00 og 22.00, eitthvað fyrr á laugardögum.

Gildir fyrir póstnúmer: 101, 102, 103, 104, 105, 107, 108, 109, 110, 111, 112, 113, 170, 200, 201, 203, 210, 220, 221, 270.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaup á öllum vörum að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið ef skila á vöru. Kvittun eða gjafamiði fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Inneignarnóta er afhent ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin, eða endurgreitt inná það kort sem greitt var með. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Ef eitthvað er óljóst endilega hafið samband við verslun.

Verð og trúnaður

Vinsamlegast athugið að verð á vörum geta breyst án fyrirvara. Magn á lager er einnig birt með fyrirvara þegar verslað er í netverslun okkar. Öll verð í netverslun innihalda skatta og gjöld. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Lög og varnarþing
Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.