ÚTÚRKÚ

ÚTÚRKÚ lúxus páskaegg - VEGAN haframjólkursúkkulaði - 320g

ÚTÚRKÚ lúxus páskaegg - VEGAN haframjólkursúkkulaði - 320g

Upprunalegt verð 4.900 ISK
Upprunalegt verð 5.200 ISK Tilboðsverð 4.900 ISK
Tilboð Uppselt
Með vsk.
ÚTÚRKÚ lúxus páskaeggin eru sannarlega kærkomin viðbót á íslenska markaðinn. Kakóbaunir í öllum eggjunum koma frá Suður-Ameríku og tilheyra "Fine Flavour Cacao" gæðaflokknum (sjá skilgeiningu hér að neðan). Eggin eru fagurlega skreytt með lituðu kakósmjöri og skera sig því verulega frá gömlu góðu eggjunum sem við erum vön frá stóru iðnaðarframleiðendunum. Innvolsið er einnig í allt öðrum gæðaflokki en við erum vön.

ÚTÚRKÚ er ekki að reyna að keppa við gömlu framleiðendurna í páskaeggjum, heldur viljum við bjóða sælkerum uppá bragðbetri, fallegri valkost.

FINE FLAVOUR CACAO (FFC)
FFC er kakó sem telst til bragðbesta kakós sem til er. Það sem einkennir kakóið er ávaxtakeimur, blóma- og jurtabragð, karamelluríkt og flókinn og vel balanseraður kakógrunnur. Einungis um 8% af kakói í heiminum fellur undir skilgreiningu á FFC.

HAFRAMJÓLKURSÚKKULAÐI 43%
Kakóbaunirnar í haframjólkursúkkulaðinu koma frá Kólumbíu og tilheyra FFC gæðaflokknum. Í stað mjólkurdufts er notast við haframjólkurduft og súkkulaðið er því algerlega vegan. Við erum verulega stolt af þessu súkkulaði því það tók okkur eitt og hálft ár að finna vegan "mjólkur"súkkulaði sem uppfyllir okkar gæðakröfur. Við erum sannfærð um að bæði grænkerar og hefðbundnir súkkulaðiunnendur munu elska þetta súkkulaði.

INNVOLS
Inni í haframjólkursúkkulaðiegginu er ristaðar möndlur og heslihnetur hjúpaðar í súkkulaði og örþunnu sykurlagi, Heslihneturnar eru frá Piemonte héraði (Piemonte P.G.I Hazelnuts) og möndlurnar eru frá Toritto í Apulia héraði á Suður-Ítalíu. Öll innihaldsefni eru að sjálfsögðu vegan.

MÁLSHÁTTUR
Er málsháttur í egginu? Já, okkur finnst það ómissandi þáttur af íslensku páskaeggjahefðinni.

LITIR Í BOÐI
Haframjólkursúkkulaðieggin eru til með rauðum og gulum doppum. Fleiri litir bætast e.t.v. við síðar.

UM ÚTÚRKÚ
ÚTÚRKÚ er nýjasta viðbótin við sælkerasúkkulaði á Íslandi og hóf að framleiða súkkulaðiplötur í september 2023 Allt hráefni er af hæsta gæðaflokki og mætti í raun frekar kalla það konfekt-súkkulaði frekar en hefðbundið plötusúkkulaði. 

Páskaegg og konfekt eru nýjastu vörurnar hjá ÚTÚRKÚ og markmiðið með framleiðslunni er einfaldlega að framleiða fallegustu og bragðbestu páskegg sem í boði eru á Íslandi.

Skoða lýsingu