ÚTÚRKÚ

ÚTÚRKÚ páskaegg - karamellusúkkulaði - 340g

ÚTÚRKÚ páskaegg - karamellusúkkulaði - 340g

Upprunalegt verð 4.900 ISK
Upprunalegt verð Tilboðsverð 4.900 ISK
Tilboð Uppselt
Með vsk.

ÚTÚRKÚ lúxus páskaeggin eru sannarlega kærkomin viðbót á íslenska markaðinn. Kakóbaunir í öllum eggjunum koma frá Suður-Ameríku og tilheyra "Fine Flavour Cacao" gæðaflokknum (sjá skilgeiningu hér að neðan). 
ÚTÚRKÚ er ekki að reyna að keppa við gömlu framleiðendurna í páskaeggjum, heldur viljum við bjóða sælkerum uppá bragðbetri, fallegri valkost.

FINE FLAVOUR CACAO (FFC)
FFC er kakó sem telst til bragðbesta kakós sem til er. Það sem einkennir kakóið er ávaxtakeimur, blóma- og jurtabragð, karamelluríkt og flókinn og vel balanseraður kakógrunnur. Einungis um 8% af kakói í heiminum fellur undir skilgreiningu á FFC.

KARAMELLUSÚKKULAÐI 33%
Kakóbaunirnar í karamellusúkkulaðinu koma frá Kólumbíu og tilheyra FFC gæðaflokknum.

INNVOLS
Inni í mjólkursúkkulaðiegginu eru m.a. hjúpaðar lakkrískúlur og marsipan egg..

MÁLSHÁTTUR
Er málsháttur í egginu? Já, okkur finnst það ómissandi þáttur af íslensku páskaeggjahefðinni.

UM ÚTÚRKÚ
ÚTÚRKÚ er nýjasta viðbótin við sælkerasúkkulaði á Íslandi og hóf að framleiða súkkulaðiplötur í september 2023 Allt hráefni er af hæsta gæðaflokki og mætti í raun frekar kalla það konfekt-súkkulaði frekar en hefðbundið plötusúkkulaði. 

Páskaegg og konfekt eru nýjasta viðbótin hjá ÚTÚRKÚ og markmiðið með framleiðslunni er einfaldlega að framleiða fallegustu og bragðbestu páskegg sem í boði eru á Íslandi.

Skoða lýsingu